Hægt og sígandi að nálgast

Untitled-1Þrátt fyrir skelfilega byrjun og mark á okkur á fyrstu mínútu sýndu mínir menn úr hverju þeir eru gerðir og sigldu yfir fríska tottara 1-3 og má segja að þessi sigur hafi aldrei verið í hættu.

Það sem kannski er ánægjulegast úr þessum leik eru markaskorararnir, Giggs skorar beint úr aukaspyrnu og segir frá því í í viðtali eftir leik að það fari töluvert meiri tími í að æfa aukaspyrnur eftir að Ronaldo fór... ;o)....Anderson skorar fyrsta markið sitt í deildinni og spái ég því að þau fara koma örar en hingað til hefur verið og að lokum sannar Meistari Rooney að hann er sá einstaklingur í liðinu sem ætlar að stíga upp og fylla skarðið sem Ronaldo skilur eftir - 5 mörk í fimm leikjum, glæsilegur fótboltamaður!!!

En þetta var líka góður dagur í íslensku knattspyrnunni þar sem mínir menn í FRAM tóku kr í undanúrslitum bikarsins og eru þar með komnir í úrslitaleikinn og svo komst mitt lið úr Hafnarfirði, Haukar, upp í úrvalsdeild með sigri á Selfossi....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Liv tapar á móti Tottunum og þið vinnið þá

Þið tapið á móti Burnley og við vinnum Þá

Humm

En það sem virkilega stendur uppúr er að FRAM er komið í úrslitin í bikarnum.

Nú svo unnu Liv og REAL auðvitað

Haukar er ekki nóg að vera með eitt fimleikafélag úr skítafirðinum á meðal þeirra bestu.

NKL.

Ómar Ingi, 13.9.2009 kl. 18:02

2 Smámynd: Ólafur Tryggvason

Við skulum hafa það á hreinu að það eru tvö fimleikafélög í Hafnarfirði, FH og Björk. Haukar er knattspyrnufélag og það fótboltafélag sem Séra Friðrik stofnaði á höfuðborgarsvæðinu sem er með stærst hjarta hitt fuglafélagið er eins andlaust og árangur sumarsins ber vitni.

Ólafur Tryggvason, 13.9.2009 kl. 19:29

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Amen

Víðir Benediktsson, 14.9.2009 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur Tryggvason
Ólafur Tryggvason
Ef þú ert ekki Frammari af hverju ertu þá með Fram(m)tennur?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 46998

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband