Af hverju að lemja á löggunni? hvað hefur hún gert þjóðinni?

Ég er með skrifstofu í nágrenninu, ég var upp úr hádegi búinn að vera heyra háfaða sem ég skildi ekkert í því hvaða háfaði var, ég hélt fyrst að það væri kviknað annað stórbálið í miðborginni því stöðugur sírennuhljómur dundi yfir hverfinu.

Ég ákvað að fá mér hádegisgöngutúr til að kanna málið eftir að hafa séð á netinu myndir af lögreglumönnum gráum fyrir járnum, ég var þar greinilega einn af mörgum sem komið við til að skoða því flestir voru á rölti í hæfilegri fjarlægð að virða fyrir sér "ástandið". Ég tók mér stöðu á Austurvelli og virti fyrir mér það sem fyrir augu bar og fannst mér í fyrstu flott hvað stór hópur fólks var að gera, lemjandi potta, pönnur eða hvað það sem fyrir höndum bar, Stulli labbaði um með kafaraloftkút á bakinu tengdan við stóra loftlúðra og lét búnaðinn blása í gríð og er, FLOTTUR. En svo tók ég eftir að inn á milli voru einstaklingar sem greinilega voru að stofna til illinda, gengu ítrekað upp að lögreglumönnum með ógnandi tilburðum og orðbragði.

Ég tók eftir að í Alþingisgarðinum var eitthvað að gerast þannig ég ákvað að færa mig þangað. Ég labbaði í áttina að Dómkirkjunni, inni í Alþingisgarðinum var töluverður fjöldi fólks og fleiri streymdu inn í garðinn yfir vegginn þar sem lögreglan var búin að lokka hefðbundnum inngönguleiðum. Það var greinilega að byggjast upp mikill æsingur. Ýmsu lauslegu var grýtt í átt að lögreglumönnum og Alþingishúsinu og var þarna farið að bera minna á hávaðamótmælum þar sem fleiri og fleiri virtust hafa meiri áhuga á að úthúða lögreglunni eins óskiljanlegt og það kann að hljóma.

Ég kláraði hringinn í kringum húsið og labbaði ég um óáreittur enda rölti ég í rólegheitum og án fúkyrða í garð nokkurs mans sem á vegi mínum varð og þaðan beinustu leið upp á skrifstofu aftur. Áður en ég hélt heim á leið eftir vinnu ákvað ég að kíkja við aftur þar sem ég sá á netinu að enn var eitthvað af fólki á svæðinu. Töluvert minna var af fólki í seinnaskiptið en þeim mun meira var af fólki sem var mjög heitt í hamsi. Lögreglumenn allir út ataðir í mjólkurafurðum þar sem þeir stóðu undir stöðugum svívirðingum fólks og höfðu greinilega gert í allan þann tíma sem ég hafði verið í burtu.

Ég segi fyrir mitt leiti að þau mótmæli sem ég sá í fyrstu vera gríðarlega áhrifarík og kröftug, þar sem saman voru kominn stór hópur fólks með ýmiskonar hávaðatól til að láta ráðamenn heyra það með kröftugum hætti að þeim væri alvara með að eitthvað þyrfti að gera og það strax. En sá hópur sem greinilega nýtir sér ástandið til að fá útrás fyrir ofbeldi og skemmdarfýsn er einungis að skemma fyrir þeim góða málstað sem viðhafður er og eins víst að hann sameinar ekki þjóðina þvert á móti. Ég held að Hörður Torfa ætti nú bara að fá vini sína sem sjá um skipulag gleðigöngunnar til að fá þjóðina til liðs við sig því þar mæta ár hvert um 80.000.- manns ár hvert með áhrifaríkum hætti og án alls ofbeldis.

Lögreglumenn eru líka þjóðin og eru fólk eins og við hin, fólk sem er með erlend lán og skuldir sem vaða upp úr öllu valdi. Þetta er láglaunastétt sem vinnur undir miklu álagi, líkamlegu og andlegu sem ég held að fæstir þeir ofbeldisseggir sem þeim mæta gætu sinnt svo vel sé. það eina kannski sem þeir þurfa ekki að hafa áhyggjur af sem við flest hin þurfum að hafa áhyggjur af er að þeir missi vinnuna, ofbeldismenn mótmælanna sjá til þess.

Ég hvet mótmælendur til að láta ekki ofbeldis fólk innan þeirra raða afskiptalaust, það er alveg ljóst að ef þú ræðst gegn lögreglu með ofbeldi á hún engra kosta völ nema beita hörku til baka. Það eina sem það gefur af sér er meiri og meiri harka og hún er málstaðnum klárlega ekki til framdráttar.

Pís Át -


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Friður Feiti

Ómar Ingi, 20.1.2009 kl. 23:08

2 Smámynd: Gunnhildur Ólafsdóttir

Eins og talað út úr mínu hjarta! Alveg ótrúlegt hvað  sumir mótmælendur líta á lögregluna sem andstæðinga sína, og beina reiðinni í ranga átt.

Gunnhildur Ólafsdóttir, 20.1.2009 kl. 23:12

3 Smámynd: Pétur Kristinsson

Ég mótmæli!! Bjórinn lækki og Liverpool á toppinn :)

Pétur Kristinsson, 21.1.2009 kl. 02:12

4 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Ég held King að lögreglan hafi bara lent svona í skotlínunni og einhvern vegin virðast þeir ná fram því versta í fari mótmælenda. Ekki þar fyrir að ég skil vel að fólk sé reitt eins og ástandið er í þjóðfélaginu og ég held eins og Pétur að þessi mótmæli séu fyrst og fremst út af því að Liverpool féll af toppnum ?? nei þetta er svona smá grín hjá mér en ástandið er ekki neitt til að grínast með. Kv.

Þórarinn M Friðgeirsson, 21.1.2009 kl. 13:22

5 Smámynd: Ólafur Tryggvason

Ég er ekki sammála því að lögreglan sé að lenda í skotlínunni - mótmælendur hefðu auðveldlega getað viðhaft hávaðamótmæli sín án þess að gera aðsúg að lögreglunni og held ég að málstaður þeirra hefði komið sterkar fram ef það hefði verið raunin. Það er alla vega mín sýn á málinu eins og ég sá aðstæður.

Ólafur Tryggvason, 21.1.2009 kl. 20:27

6 Smámynd: Víðir Benediktsson

Fólk skeytir skapi sínu á því sem fyrir verður. Benni bleiknefur og Wenni wannabe skeyta skapi sínu á öldruðum skota af því liðin þeirra geta ekki rassgat í fótbolta

Víðir Benediktsson, 24.1.2009 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ólafur Tryggvason
Ólafur Tryggvason
Ef þú ert ekki Frammari af hverju ertu þá með Fram(m)tennur?
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband