2.11.2008 | 22:52
Fótbolti og aftur fótbolti !!
Eftir að hafa gefið þessu rúman sólarhring þá fór ég af stað og renndi yfir bloggheima og skoðaði blogg púllara vina minna (og einnig þeirra púllara sem ég tel ekki vini mína) en sérkennileg tilfinning rann á mig, því það var eins og að leikur liverpool þessa helgina hafi verið frestað, því það var hvergi að sjá hjá þessum ágætu mönnum að neinn leikur hafi verið spilað. Nokkrir höfðu fyrr í vikunni spáð smásigrum og stórsigrum og allt þar á milli en engin skrif um niðurstöðu leiksins. Ég rakst reyndar á einhver skrif hjá Hallgrími þar sem hann var að skoða kristalkúlu og hætti ég að lesa í skyndingu þar sem hann hlaut að vera fara yfirum í kreppunni.
Alveg er þetta nú í takt við allt það sem ég hef skrifað í gegnum tíðina. Það vinnast nokkrir leikir í byrjun móts og púllaragreyin eru eins og táningur með standpínu í fyrsta skipti........ LOL en hvar eru þeir nú, eitt tap og PÚFFF, daddara engir púllarar að skrifa. HAHAHAHA
Annars gerðu mínir menn sér lífið leitt með að hleypa Hull aftur inn í leikinn eftir að hafa verið komnir 4-1 yfir - en það sem stendur upp úr er að Ronaldo er klárlega kominn í gang með 4 mörk í síðustu tveim leikjum. Berba er að sýna það og sanna hversu magnaður leikmaður hann er með svakalegum stoðsendingum hægri vinstri, það styttist í að ég taki kaupverðið á honum í sátt. Rooney að vanda magnaður eins og í raun allt liðið, það er kominn svakaleg keyrsla á liðið sem verður erfitt að stoppa og spennandi að sjá skemmtilegan slag við nallana um aðra helgi.
Ég auglýsi eftir púllurunum sem eru búnir að hafa sig mikið í frammi upp á síðkastið - LOL -
Flokkur: Enski boltinn | Facebook
Bloggvinir
-
storibjor
-
siggathora
-
doddilitli
-
sedill
-
steinigje
-
hugs
-
hallgrimurg
-
sailor
-
valurstef
-
hproppe
-
amotisol
-
hva
-
eythora
-
snorris
-
stormsker
-
oddgeire
-
gummiarnar
-
asgeirpall
-
pbj
-
johnnybravo
-
gvario
-
peturorri
-
brandurj
-
vefritid
-
bergrun
-
bonham
-
jakobk
-
metal
-
gongudejavu
-
bakland
-
gattin
-
svali
-
svanurmd
-
zuuber
-
totinn
-
thordish
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 47253
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Óli ég elska þig
En Liverpool er málið og við erum alltaf sigurvegarar
Þú skilur það þegar þú verður stór
Ómar Ingi, 3.11.2008 kl. 01:42
HEY OMMI - þú gleymdir að blogga um leiki helgarinnar - ég renndi í gengum allt ruslið sem þú dælir inn á bloggið án þess að finna neitt í tengslum við leikinn.
Ólafur Tryggvason, 3.11.2008 kl. 08:14
Sorry vinur það hefur bara verið svo helvíti mikið að gera. Þetta voru að sjálfsögðu ósanngjörn úrslit en svona er þetta. En við erum búnir að hanga helv... lengi á toppnum núna þannig að "Okkar tími" er kanski bara kominn eftir allt.
Valur Stefánsson, 5.11.2008 kl. 15:29
Eru ekki leikir helgarinnar búnir ? hafa menn ekkert að segja ? er halelúja kórinn þagnaður?
KING, 3.11.2008 kl. 08:41
#5 Haltu fast í minningu um þessi 5 stig því það er ekki langt að bíða þar til þau eru öll horfin á braut og þið lillu púllarar líka, það þurfti nú ekki nema einn tapleik til að þið forðist netsamskipti eins og heitan eldinn.
KING, 3.11.2008 kl. 20:46
Reynir Elís Þorvaldsson, 10.11.2008 kl. 13:32
Já það er gott að þú ert glaður að þið hafið unnið neðsta liðið í einhverjum leiðinlegasta leik sem sögur fara af.
Rétt er það að það var hræðilegt að tapa þessum leik á móti Arsenal en leikurinn var frábær skemmtun.
Ég segi það enn og aftur - haltu fast í minninguna því þess er ekki langt að bíða að þið verðið komnir í ykkar gömlu stöðu, það er á eftir mínum mönnum.
Ólafur Tryggvason, 10.11.2008 kl. 18:18
Hahaha...
Ertu að svara þér?
Eina sem ég gerði var að setja inn gamlar tilvitnanir frá þér!
Reynir Elís Þorvaldsson, 11.11.2008 kl. 09:40
"Ég þekki þig og þínar hugsanir"
Þessar tilvitnanir þínar höfðu bara einn tilgang og ég las bara á milli línanna.
Ólafur Tryggvason, 11.11.2008 kl. 21:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.