Færsluflokkur: Enski boltinn

YYYYYYYEEEEEEEESSSSSS ;o)

Paul Scholes fagnar glæsimarki sínu,<br><em>Reuters</em>

Ég held að Scholes "gamli" hafi einfaldlega ákveðið það að hann ætlaði ekki að missa af öðrum úrslitaleik en kallinn var í banni í leiknum ógurlega á Nývangi &#39;99 og alveg klárt að hann ætlaði ekki að enda ferilinn án þess að hafa spilað úrslitaleik í CL, spurningin er bara hvort hann muni lyfta bikar í leikslok!!

Það er ekki laust við að spennustigið hafi verið hátt á meðan leiknum stóð allt til síðustu mínútu því það þurfti ekki nema eitt mark og við værum úti. Það virtist ekki koma að sök að tvo lykilmenn vantaði í liðið og ekki laust við að smá skjálfti hafi farið um mann þegar maður sá byrjunarliðið og hversu þunnt skipaður bekkurinn var af mönnum á topp leveli til að koma inn á.

Brown klárlega maður leiksins og spilaði hann óaðfinnanlega í þessum leik og var eins og klettur í vörninni, Evra borinn út af eftir höfuð meiðsl og ekki laust við að maður sé farinn að hafa smá áhyggjur af þessu öllu saman. En við erum með Silvestre að koma úr meiðslum og ætti hann að geta leyst þessa stöðu ef til þess kemur. Það má ekki gleyma þætti Teves í þessum leik en hann barðist eins og ljón allan leikinn og hætti aldrei, það léttist aðeins á manni brúnin að sjá að þarna er leikmaður sem getur tekið við hlutverki Rooney við að djöflast í öllum boltum þarna frammi. En það er ljóst að okkur vantar hreinræktaðan striker með þeim þarna frammi og held ég að einn slíkur verði keyptur í sumar.

Nú er bara sjá hvort það er Liverpúl eða Chelsea sem við fáum í úrslitaleiknum 21. maí, mér er svo sem alveg sama hvort liðið það verður því þetta verður svakalegur leikur að vinna og hörmulegur að tapa...... Devil


mbl.is Scholes skaut Man Utd til Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lið ársins

Ég held ég geti bara skrifað undir þetta lið sem lið ársins nema það að Van De Sar og Evra eiga klárlega heima í þessu liði.

 

_______________David James (Portsmouth)

Sagna (Arsenal)__Ferdinand (Man Utd)__Vidic (Man Utd)__Clichy (Arsenal)

Ronaldo (Man Utd)__Gerrard (Liverpool)__Fabregas (Arsenal)__Young (Aston Villa)

______Adebayor (Arsenal)__Torres (Liverpool)


mbl.is Fjórir leikmenn Arsenal í liði ársins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benni Baunahaus að búa til myndband handa Torres og Geirharði! LOL

Benitez klippti saman bestu tilþrif Drogba

mynd
Drogba er leiðinlega iðinn við dýfurnar NordcPhotos/GettyImages

Rafa Benitez hefur talsverðar áhyggjur af Didier Drogba fyrir síðari leik Liverpool og Chelsea í Meistaradeildinni, en ekki bara því að hann eigi eftir að skora mörk. Benitez hefur þannig tekið saman sérstakt myndband með leikrænum tilþrifum Fílstrendingsins.


Sennilega sanngjarnt þrátt fyrir allt

Mikið djöfull var þetta sárt að tapa þessum leik og ég verð sennilega að viðurkenna að þetta er sanngjarnt þrátt fyrir að Chel$ký hafi bjargað tvisvar á línu....

Ég veit ekki með þessa ákvörðun Sir Alex að stilla ekki upp sterkasta mögulega liðinu sem hann hafði kosta á en það er klárt að hann er að hugsa um leikinn á þriðjudaginn á móti Barca. Það verður samt sem áður að treysta kallinum því það er jú hann sem er sigursælasti stjóri knattspyrnunnar fyrr og síðar.

Þá eru tveir leikir eftir, Chel$ký á klárlega erfiðari leiki eftir en það er ljóst að mínir menn þurfa bara girða sig í brók og klára þessa tvo leiki sem eftir eru, spilamennskan er ekki búin að vera upp á marga fiska í síðustu leikjum úti á vellinum og ekkert annað að gera en að halda haus í þessum tveim leikjum sem eru eftir.

Manchester United 
West Ham - heima
Wigan - úti

Chelsea 
Newcastle - úti
Bolton - heima

 


mbl.is Chelsea sigraði Man Utd, 2:1, og liðin jöfn að stigum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EKKI ORÐ, BARA EIN MYND.

riisedx0

ELDARNIR LOGA SEM ALDREI FYRR.

looserpoolUss - ég segi ekki annað en ég vorkenni púllurunum aðeins (haha bara oggu oggu pínulítið), en allt það sem þeir og fleiri sögðu að myndi gerast fyrir MAN UTD er að gerast fyrir þá á mjög drastiskan máta.

Fréttir frá slúðurblöðunum á Englandi eru oft á tíðum með skrautlegar fréttir en þessi frétt hér að neðan er ekki úr neinu af sorpblöðunun, þetta er hún virta blaði THE TIMES

"Liverpool must repay £31.5 million to banking institutions in little more than a year or risk having to sell Fernando Torres and Ryan Babel.

The Times has learnt that Liverpool borrowed the money to sign Torres, the Spain forward who has scored 30 goals this season and has already become a firm favourite on the Kop, from Atlético Madrid last summer. The club then refinanced that debt on January 25, at the same time as they secured a £350 million refinancing package.

Liverpool entered into an 18-month loan agreement with interest of 9 per cent — £2.8 million a year — with a letter of credit to pay back the £31.5 million at the end of the period.

Should Liverpool be unable to pay back or refinance the loan, banks could force the sale of Torres and Babel, who was also included in the smaller refinancing package."


20 marka maður

Það er mikið rætt um það (sérstaklega af lúserpúllurum) að Rooney sé ekki nógu öflugur skorari af framherja að vera.

En rétt tæplega 20 mörk á tímabilinu er nú bara ásættanlegt og sérstaklega í ljósi þess að hann er með 40 marka mann með sér í liðinu. Rooney leggur ótrúlega mikið til liðsins og hefur það verið raunin í vetur að okkur hefur munað meira um að missa Rooney úr liðinu heldur en td. Ronaldo.

Vissulega væri gaman að sjá þennan snilling skora meira, en hann er 22 ára og á vafalaust eftir að taka á þessum þætti í sinni spilamennsku.


mbl.is Ronaldo, Tevez og Rooney hafa skorað 72 mörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OLE OLE OLE, Steve Bruce, Steve Bruce !!!!

Gamli MAN UTD varnarjaxlinn Steve Bruce heldur betur að leggja hönd á plóginn í titilbaráttu MAN UTD.

Það voru ekki margir sem spáðu því að Wigan myndi stríða Chel$ký en annað kom á daginn.

Nú er staðan þannig að MAN UTD þarf að tapa tveim af neðangreindum fjórum leikjum sem eftir eru:

Blackburn - úti
Chelsea - úti
West Ham - heima
Wigan - úti

Reyndar er þarna um að ræða þrjá útileiki en ég held að það ætti ekki að koma að sök, það dugar MAN UTD að vinna tvo þessara leikja ásamt því að vinna einn og gera eitt jafntefli, en við sjáum hvað setur en sannarlega óvænt en kærkominn úrslit Devil


mbl.is Wigan jafnaði í uppbótartíma á Stamford Bridge
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einfaldlega langbesti leikmaður heims í dag

Kominn með 38 mörk samtals í öllum keppnum sem er magnaður árangur og hið minnsta 6 leikir eftir en gæti fárið í 8 leiki.

Mig minnir að met Denis Law sé 44 mörk og fannst manni það met vera ansi fjarri lagi, en nú er bara svo komið að það gæti allt eins fallið!!!


mbl.is Ronaldo með sex marka forskot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ólafur Tryggvason
Ólafur Tryggvason
Ef þú ert ekki Frammari af hverju ertu þá með Fram(m)tennur?
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 47233

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband