2.4.2008 | 12:09
Ég vill skila þakklæti til vörubílstjóra !
Og ég velti fyrir mér hvort að labbakútarnir sem hafa verið að úthúða þessum aðgerðum hér á blogginu hvort þeir skammist sín svo mikið að þeir þori ekki út á bensínstöð til að fylla tankinn?
En að öðru - ég tók þátt í mótmælum F4x4 í gær á mínum fjallatrukk og er ég mjög ósáttur við lögregluna og hennar þátt í málinu, þeir eru búnir að vera grenja yfir því að vörubólstjórar séu ekki að mótmæla í samráði við þá en ég held það hafi ALGJÖRLEGA KOMIÐ Í LJÓS af hverju vörubílstjórar hafa ekki og munu ekki vera í samvinnu við lögregluna.
Það tókst algjörlega að forða því að máttur þessara mótmæla blasti við ráðamönnum því fæstir áttu þess kost að komast á endastöð og voru fastir í röðinni svo langt sem út að Nýherjahúsi. Og á meðan fréttamenn töluðu um það í útvarpinu að þetta væru nú ekki svo fjölmenn mótmæli (en hávær) sat ég úti í bíl við seðlabankann og það sauð á MÉR, ekki bílnum, þar ég nálgaðist austurvöll nákvæmlega ekki neitt. Ég fór því úr röðinni og niður á Austurvöll eftir öðrum leiðum til að sjá hvað margir væru þar. Að mínu mati gerði löggan lítið úr okkur jeppamönnum og þeim sem tóku þátt í þessum mótmælum með því að láta stilla þessum fjórum jeppum upp fyrir framan alþingi (hvað var þetta bílasýning?) ein og eitthvað lélegt skraut. Trukkarnir sem voru þarna í kring björguðu því sem bjargað var með því að liggja á flautunni og þá sérstaklega þeir sem voru í einum hnapp við Hjálpræðisherinn.
Ég get ekki séð að það hefði verið neitt mál fyrir lögguna að leggja þetta upp þannig fyrst þetta var í samráði við hana á annað borð að menn keyrðu lækjargötu - Vonarstræti - Templarasund - Kirkjustræti og svo hentuga leið í burtu. Þannig hefði bílaröðin getað rúllað hægt og rólega fram hjá Alþingi og með tilheyrandi lúðrablæstri og þar með hefðu allir fengið að koma skoðun sinni á framfæri sem það hefðu viljað.
Það eina sem Löggan fékk út úr þessu var að það er klárt að vörubílstjórar leita ekki eftir samráði við lögguna í mótmælunum framundan eins og komið hefur í ljós í dag.
Ég vill samt taka fram að ég er mjög ánægður með þátt F4x4 í skipulagningunni, þau voru nákvæmlega eins og slíkum klúbb sæmir.
Fleiri lækka eldsneytisverð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.4.2008 | 09:03
Ronaldo = Jordan = Schumacher = Ali
Af og til koma fram snillingar í íþróttum sem fá mann til að hrista hausinn yfir ótrúlegum hæfileikum, hæfileikum sem taka þá íþrótt sem þeir taka þátt upp á annað level. Cristiano Ronaldo er klárlega að taka ensku knattspyrnuna upp á annað level og er hrein unum að horfa á drenginn.
Hraði með og án bolta.
Ótrúleg boltatækni.
Mögnuð sendingageta.
Skottækni sem ekki hefur sést áður.
Frábær Skallamaður.
Sannarlega einn allra magnaðasti knattspyrnumaðurinn sem komið hefur fram í áratugi!
Ronaldo: Eigum frábæra möguleika | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.4.2008 | 13:20
Slæmar fréttir
Ef Carrick getur ekki verið með því hann hefur sínt það og sannað í vetur að hann er einn allra öflugasti miðjumaður Englendinga og ljóst að hann fer að velta Evertonmanninum Steven Gerrard af stalli. Hvað er málið með alla knattspyrnumenn sem geta eitthvað frá þessari borg - þeir eru Everton menn en ekki lúserpúllarar. LOL.
En að leik kvöldsins - Totti ekki með - klárlega veiking fyrir rómverja en ég held samt að það hái þeim minna en í fyrra þar se þeir eru með mun öflugra lið í dag.
Einhver meiðsl eru á lykilmönnum MAN UTD en ég held að við getum náð að tefla fram sama liði og kjöldró Villa um síðustu helgi.
Óvíst með Carrick gegn Roma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.3.2008 | 07:34
ROCK ON BOYS
Viðbúnaður vegna umferðatafa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
30.3.2008 | 09:33
Viva Ronaldo
Set þennan söngbút hér inn til minningar um Pésa Púl vin minn (aKa Stórabjór) sem eitt sinn var og hét umræðumaður um enskan fótbolta. En nú í ljósi árangurs lúserpúl hefur mikið fjarað undan honum líkt og fjaran við Vík í Mýrdal og er þar sammerkt að stutt er í að allt sekkur í sæ ef fer sem horfir. Ég hef Pésa grunaðan að vera farin að horfa meira og meira á MAN UTD leiki til að sjá skemmtilegan fótbolta
LIFI PÉSI MAN UTD
Ronaldo kominn með 26 mörk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
29.3.2008 | 23:36
Það er mjög auðvelt að svara því
Af hverju virðast allir vera á móti Arsenal ? jú hér er lýsandi dæmi um það af hverju það virðist alltaf vera mótvindur hjá Arsenal.
Eftir skelfilegt atvik þegar Edouardo fótbrotnaði illa fór Wenger mikinn í viðtölum og gekk svo langt að fara fram á að Taylor fengi lífstíðarbann frá knattspyrnuiðkun fyrir brot sitt en nú í dag var einn af hans mönnum, Diaby, að framkvæma nánast sama gjörninginn en þó með þeim mun að hann fótbraut ekki þann sem fyrir tæklingunni varð líkt og gerðist hjá Taylor. Wenger hefur þetta að segja um atvikið í dag :
"Það var ekki ásetningur í þessu hjá honum en hann var með löppina of ofarlega þannig að við getum ekki mótmælt rauða spjaldinu. Mér finnst ekki hægt að bera þessar tæklingar saman því tækling Taylor var mikið hærri," [tekið af www.visir.is]
Þarna sést það svart á hvítu hvað þessar kröfur þeirra sem fóru fram á að Taylor fengi extra langt bann eru í raun fáránlegar. Wenger sýnir það enn og aftur hvað hann er klaufalegur í yfirlýsingum sínum og það væri sennilega Arsenalliðinu fyrir bestu að fá mann til að koma fram á opinberum vettvangi.
Fabregas: Við erum hataðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.3.2008 | 14:16
Ástandið á Ítalíu er til skammar
Það er með ólíkindum hvað ítölsk knattspyrnuyfirvöld komast upp með að vera með allt niðrum sig í öryggismálum og þá sérstaklega í ljósi þeirra refsinga sem ensk knattspyrnulið hlutu á níundaáratug síðustu aldar fyrir róstur í tengslum við leiki enski liðanna.
Ég sá á MUTV í gær frétt í tengslum við leikinn í Róm í næstu viku þar sem viðtal var við yfirmann öryggismála á Old Trafford en hann og hans fólk hafa verið að kenna rómverskum starfsbræðrum sínum hvernig standa á að öryggismálum, en það skrítna við þetta allt saman er að í hvert sinn sem ný viðureign gengur í garð, og hafa þær nú verið nokkrar á síðustu árum, er verið að kenna ítölunum sömu hlutina ár eftir ár. Öryggisgæslan a Old Trafford hefur verið að lána Rómverjum ýmsan öryggisbúnað sem þeir hafa svo skilið eftir að leik loknum en sá búnaður er ávallt tíndur tröllum gefin þegar komið er aftur að málinu.
Það er sorgleg staðreynd en flest það sem tengist ítalskri knattspyrnu er handónýtt og ljóst að UEFA þarf að fara taka á málum þar.
Ekkert áfengi í Róm fyrir leik Roma og United | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.3.2008 | 13:20
Vælukjóar
Mig rekur í rogastans við lestur sumra sem eru að kommenta á þessar aðgerðir!!
Svo virðist sem að í lagi sé að ýmiskonar mótmæli séu viðhöfð í tíma og ótíma þegar verið er að mótmæla einhverjum mannréttindamálum úti í heimi en þegar verið er að mótmæla einhverju sem snertir okkur sjálf þá er allt vont....
Þessar teppur sem myndast eru nú ekkert mikið stærri heldur en þær teppur sem eru á álagstímum þessara gatnamóta á hverjum einasta morgni og síðdegi og spyr ég þá hvað þið geriði þá þegar þið þurfið að komast leiðar ykkar?
Þetta er magnað framtak á atvinnubílstjórum og við mættum fleiri taka þetta framtak þeirra til fyrirmyndar þegar verið er að tína af okkur hýruna.
Bílstjórar mótmæla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.3.2008 | 08:57
Maður sem hittir naglan á höfuðið...
Klárlega í hnotskurn það sem er að hjá því ágæta félagi Liverpool.
Burt séð frá glæsilegum árangri í meistaradeildinni hér um árið þá hefur Liverpool verið á hælunum undanfarna áratugi og ekki laust við að maður sakni þess smá að þetta fyrrum stórveldi sé ekki lengur í baráttu við besta lið heims á toppnum á Englandi.
En þetta sem Henchoz heldur fram er í hnotskurn það sem ég hef verið að punda á kvikindin undanfarinn misseri um að sé þeirra vandamál, það eru í mesta lagi þrír leikmenn í liðinu sem teljast á topp leveli og ættu möguleika á að komast í liðið hjá stóru liðunum þrem (MAN UTD, CHE, ARS). Restin af hópnum er einfaldlega samansafn af þokkalegum meðalmönnum sem munu aldrei koma klúbbnum á þann stall sem hann var fyrir 25 árum síðan.
Henchoz: Liverpool treystir of mikið á tvo menn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.3.2008 | 11:58
Lokaorð mín í máli "Heimskasta manns heims"
Lokaorð mín í máli "Heimskasta manns heims" eru þetta myndband hér að neðan - þarf að ræða þetta eitthvað frekar?
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggvinir
- storibjor
- siggathora
- doddilitli
- sedill
- steinigje
- hugs
- hallgrimurg
- sailor
- valurstef
- hproppe
- amotisol
- hva
- eythora
- snorris
- stormsker
- oddgeire
- gummiarnar
- asgeirpall
- pbj
- johnnybravo
- gvario
- peturorri
- brandurj
- vefritid
- bergrun
- bonham
- jakobk
- metal
- gongudejavu
- bakland
- gattin
- svali
- svanurmd
- zuuber
- totinn
- thordish
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar